Bloggröfl Erlu

Röfl Röfl og Röfl

21.12.2006 20:56:39 / erlasonja

Gleðileg Jól

jól jól jól jól...pakkar pakkar pakkar. Gaman að gefa og gaman að fá það er mín skoðun á pökkum.

ég á 5 vinnu-daga eftir í fullu starfi í apótekinu og þá byrja ég í nýju starfi hjá borginni sem verður fínt en nú þarf ég bara að losna endanlega við apótekið og fara vinna við eitthvað meira spennandi og mig er farið að hlakka svolítið til, en mig grunar (og veit) að þeir eiga eftir að vera draga lappirnar í tölvumálum þannig ég á aldrei eftir að losna undan þessu, þannig mér datt í hug ef það kemur upp í janúar að það náist ekki að klára að setja upp tölvukerfið  upp alveg á hinum tveim útibúunum (sem er mitt starf svona nokkurn veginn) á tilsettum tíma, þá ætla ég að semja um mjög góða kauphækkun á meðan þetta tölvudæmi er, þannig að þeir hætti þessum seinagangi og drífi þetta af. Mér reyndar kvíður pínu fyrir því að þetta taki langan tíma, ég hreynlega nenni ekki svona veseni mig langar að fara vinna við eitthvað miklu skemmtilegra en það sem þeir geta boðið mér. En samt get ég ekki kvartað þar sem þetta eru góð laun. En þar sem ég hef ekkert vit á peningum eða tilgangi þeirra þá hefur það lítið að segja fyrir mig. Ég er bara þannig að ég vinn ánægjunar vegna frekar en að keppast við að hafa sem hæstu laun.

Eitt sem mig langar að allir spyrji sig "þekki ég nágrannan minn", hafið þið velt því fyrir ykkur að nú orðið þá þekkir maður ekki nágranna sína, þegar ég var yngri þá þekktust einhvernveginn allir, þegar ég bjó í Bolungarvík þá náttúrulega þekktust allir en ég er meira að tala um í borginni. Nota Bene þá er ég að meina á þeim stöðum sem maður náði að búa einhvern tíma á, þá þekkti maður nágranann. En nú í dag þá þekkir maður ekki einu sinni þann sem býr á móti manni eða fyrir ofan mann, huhhumm  þar að segja að það eina sem ég veit um hjónin fyrir ofan er að það ÞARF virkilega að fara smyrja Lazy boyinnn, maðurinn má varla anda í honum ánþess að það leiði út frá sér þetta líka háværa gorma brak hljóð sem gjörsamlega smígur inn að beini, en það er reyndar eina sem við heyrum að ofan. En svo er það nágraninn á móti, hann flutti inn seint í sumar og ég hef ekki ENN séð hann, mamma hefur reyndar séð hann og það litla sem við vitum er (án þess að vera stokker eða eitthvað) er  að hann er slökkviliðsmaður og býr einn og hann er í DAGATALINU fræga, Nú er ég orðin svolítið forvitin að sjá hann. En nei ég ætla EKKI að sitja út í glugga eða frammi á gangi til að sjá hann en það eru uppástungurnar sem ég hef fengið hjá stelpunum.

Jæja nú ætla ég að fara með mömmu í Ikea að borða... ekki svo góðan mat, en hey eitthvað verður maður að láta ofaní sig.

Gleðileg Jól, knús og kossar fallega fólk.


» 1 hafa sagt sína skoðun

10.12.2006 21:56:38 / erlasonja

It´s my birthday and I did what I wanted to do :)

Jæja þá er afmælisdagurinn að líða frá og ég orðin einu ári eldri. Ég átti yndislegan dagi í gær og reyndar í dag líka. Ég fór í kringluna í gær með mömmu og Helgu að versla eftir vinnu. Bríet hitti okkur í kringlunni og eftir það var mikið hlegjið. Við ákváðum að hóa í nokkrar gellur út að borða þannig það var farið á Fridays að eta á sig feitt gat. Svo fórum við í Bíó nokkrar af okkur og fórum við að sjá the Holiday sem var alveg það sem þarf á þessum tíma árs, hugljúf góð jólamynd. Hún er svolítið löng þannig ég mæli með að velja sér þæginlegt bíó með góðum sætum. En svo í dag heyrði ég í öllum sem mér þykir vænst um sem er alltaf best á afmælisdögum. Svo skellti ég í pönnukökur og rjóma og við sátum og kjöftuðum og átum pönnsur, en svo var okkur boðið í mat til Margrétar mákonu eins og við köllum hana hér, málið er að við tvær gellurnar ég og Margrét eigum sama afmælisdag og við erum svolítið montnar af því, þannig við komum með salat og eftirréttinn og margrét sá um lærið og sósuna og þetta var alveg frábær matur og félagsskapur á svona góðum degi. En nú er að líða að svefntíma (þar sem maður er nú ekkert að yngjast þá þarf maður sinn bjútí slíp) þannig ég býð góða nótt og farið varlega inn í jólin, munið að njóta þeirra með þeim sem ykkur þykir vænt um.


» 3 hafa sagt sína skoðun

04.12.2006 20:34:14 / erlasonja

sagði upp

Hafið þið tekið eftir því að það er bókstaflega EKKERT  Í BÍÓI þessa dagana !!!! Ég hef sjaldan séð svona lélegt framboð af myndum og það á þessum tíma. Ég gjörsamleg á ekki til orð, svo er ekkert skárra að fara á vídeoleigurnar. En kannski eru þeir sem eiga bíóhúsin að reyna segja okkur að vera bara heima.

Mig langaði bara deila því með heiminum að ég er búin að segja upp starfinu mínu í apótekinu. Ég hætti formlega um áramótin en held eitthvað áframm í janúar í hálfu starfi við að koma tölvukerfinu upp hjá þeim í hinum tveim búðunum  ( þeir sem þekkja mig mjög vel vita að ég er enginn tölvuséní, en svo virðist sem ég geti nú bara heil mikið og sé bara nokkuð góð) en já planið hjá mér er að vinna í kvöld og helgarinnlitum hjá Heimaþjónustunni, það virkar þannig að ég vinn í viku og frí í viku, mán til föst er ég frá fjögur eða fimm til miðnættis að kíkja á fólk og aðstoða það lítillega eftir þörfum svo um helgar er það öllu lausara yfir daginn. Svo mér datt í hug að það væri brylljant að vinna á kaffihúsi eða einhverjum fjörugum stað á daginn eða frívikuna í heimaþjónustunni allavega mig hlakkar til að fara takast á við ný ævintýri. Jey

Allavega síja  


» 1 hafa sagt sína skoðun

28.11.2006 22:28:30 / erlasonja

Desember alveg alveg að koma

Jæja þá er ég orðin happy Jó, komin með netið heim og farin að hafa samskipti við umheiminn. og ég verð að þakka fyrir þessar frábæru hugmyndir sem komu við seinustu færslu.

        Ég er komin með gróft plan fyrir næsta ár. Ég ætla að vinna mjög mikið og safna pening, taka jafnvel 2 áfanga í fjarnámi, og hafa gaman af lífinu, fara svo til Florida með systu,pabba,stjúpu og nokkrum öðrum í júní í 2 vikna reisu. koma svo heim vinna meira, hafa sumar gaman, en fara svo í skóla næsta haust.

        En ég á afmæli eftir nokkra daga og ég veit hreynlega ekkert hvað ég á að gera. Langar að gera eitthvað spes en nenni samt ekki að hafa neitt fyrir því. Helst langar mig bara fara út að borða, eitthvað létt og skemmtilegt, fara svo á kaffi hús og tjilla (væri gaman að gera þetta með einhverjum skemmtilegum af hinu kyninu). En hvað get ég sagt ég og hinn helmingurinn af mannkyninu erum ekki alveg að hanga á sömu stöðunum if you know what I mean.

      Allavega gaman að tjatta við ykkur, endilega ef þið viljið tjá ykkur þá endilega gera það í commentum eða gestabók. Nú eða bjóðið mér á kaffihús til að kjafta.

Gleðilegan næstum bráðum Desember....


» 0 hafa sagt sína skoðun

28.10.2006 15:02:07 / erlasonja

Gætir thú lumad á hugmynd?

jæja nú vil ég bydja ykkur öll um greida, ég er ekki ánægd í vinnuni sem ég er í núna, ég hef engann áhuga á því sem ég er ad gera og fæ Thar ad leidandi enga ánægju úr thví sem ég geri allan daginn, Ég stend á smá tímamótum í lífi mínu og mig vantar hugmyndir. Mig vantar breytingu á mínum hvertdagsleika og ég thygg hugmyndir.... Ég er ekki ein af theim sem hugsa mikid um peninga (ekki misskilja ég vil fá videigandi kaup fyrir vinnu mína) en ég vil umframm allt vera ánægd í starfi og vera sátt vid afrakstur dagsins og thad sem ég legg til vinnu, ég er mjög vinnu söm og tholi ílla vinnu thar sem mikid hangs. Ég vil helst vera í kringum fólk á mínum aldri (samstarfsfólkid mitt í dag er 40 árum eldra en ég), endilega komid med hugmyndir, ég thygg allar hugmyndir sama hversu fáránlegar thær hljóma thá gæti þad verid hugmyndin sem ég er ad byda eftir. Og líka ef thid viljid tjá ykkur um adarar hugmyndir thá er thad velkomid allt til ad brjóta upp daginn í dag, lífga upp á tilveruna, ég tek á móti öllum hugmyndum med opnum huga. Endilega ljáid mér huga ykkar og hjörtu.
ps: var ad skrifa á skrítid lyklabord og tar er ekkert ed eda thorn.


» 3 hafa sagt sína skoðun

28.10.2006 13:32:38 / erlasonja

Vesturheimsókn

Ég er komin til Ísafjarðar að sjá hann Eldar litla og Dyra krútt með mömmu og Helgu. Mamma gistir hjá þeim múgífamily en við systur erum í húsinu hans pabba. Þau eru reyndar ekki heima þannig við systur erum með næstum 200 fermetra útaf fyrir okkur, 2 baðherbergi, nuddbaðkar, 2 stofur, 3 herbergi og best af öllu góða kaffi vél með eðal kaffi. Öddi og Rúna ætla að halda heljarins veislu i kvöld heima hjá sér (okkur til heiðurs að koma vestur :D ) Við ætlum síðan að kíkja á Langa Manga á hann Svavar Knút og hlusta á tóna hans. Svo er bara að stökkva upp í flugvél á morgun og fara heim í hvertdagsleikan . Jæja ég ætla að fara rölta heim til pabba að sækja bílinn hans ödda.

» 0 hafa sagt sína skoðun

10.10.2006 10:34:39 / erlasonja

Ný færsla

Ég var að eignast lítinn frænda í vikunni, reyndar er þetta svoldið seint skrifað hjá mér þar sem ÖLL BLÖÐ ÍSLANDS hafa þegar skrifað um þetta en ég hef ekki aðgang það auðveldlega að netinu. Sem reyndar líka útskýring mín á því afhverju ég er aldrei á msn eða svara pósti, ég sé þetta alltaf svo seint, en ég hef hugsað mér að bæta úr því í næsta mánuði og fá mér net heim svo ég geti farið líka að skoða skóla fyrir næsta haust og vinna í þeim málum. Allaveg það eru 9 dagar í BARCELOOOOOONA (alltaf heyri ég Olimpiulagið með quieen þegar ég segi þetta)..... Við Dísa ákváðum að sauma á okkur árshátíðarkjóla eða réttara sagt Dísa kom með þessa hugmynd og ég samþykkti og við erum báðar alveg að klára kjólana, nei bíddu ÉG er að klára sauma minn Amma Dísu er að klára sauma hennar. En þeir eru gorgius!!! Jæja ætla að snúa mér að vinnunni núna.

Heyri í ykkur kæra fólk

Kv Erla


» 3 hafa sagt sína skoðun

01.10.2006 18:32:37 / erlasonja

Jæja svona er lífið

hæhæ sæta fólk,

Jæja ég er byrjuð í nýju vinnuni og það er nokkuð gaman þar, mikið að læra og takast á við. Ég er að vinna í apóteki og það er nokkuð sem ég hef aldrei unnið við, en alltaf lætur lífið mann læra. Ég er svo að fara út til Barcelona með Dísu minni yfir helgi eftir 18 daga, og mig hlakkar svo mikið til og haldiði ekki bara að ég og Dísa erum að sauma á okkur flotta kjóla fyrir árshátíðina sem er þarna úti. En já eina sem hefur breist er að ég og Ingó erum hætt saman, en eins og ég var að segja þá lætur lífið mann alltaf vera læra eitthvað nýtt. ég skal skrifa meira næst.

Kveðja Erla


» 2 hafa sagt sína skoðun

30.08.2006 10:49:27 / erlasonja

Svona Er Lífið.....

Smá update.

Ég á 2 daga eftir af starfsnáminu, er að fara í bláalónið með Dísu á föstudaginn, plana konukvöld með fjölskildunni, fara vestur að hitta restina af fjölskildunni og Bríeti sætu, plana Barcelona ferðina mína og Dísu (og Egils ;)) Fara í Barcelona ferða okkar. Tala við Ingó og vonandi hittann í nóvember. En þetta er allt sem ég þarf að gera í næsta mánuði nema fara til Barcelona og hitta Ingó það geri ég mánuðinum eftir það, Og jú ég þarf reyndar að finna mér starf, en ég hef svo littlar áhyggjur af því, því ég veit að þetta reddast allt. En á meðan ætla ég að búa hja mömmu og Helgu og við 3 ætlum að vera saman í allan vetur. En já þetta er smá updateið mitt.

Síja later


» 2 hafa sagt sína skoðun

25.08.2006 16:39:45 / erlasonja

Færsla

Jæja ætli maður bloggi nú eitthvað víst maður er nú með netið í vinnunni og ekkert að gera.

Ég er búin að gera svo mikið í sumar að ég ætla rétt að stikkla á stóru atburðunum sem gerðust.

Ég er nemi hjá Iceland Travel eða allavega til næsta fimtudag en þá er ég búin og veit ekkert hvað tekur við. En ég hef svo sem engar áhyggjur, ég finn alltaf eitthvað sem mig langar að gera. Ég er búin að sækja um á Iceland Express og ég ætla mér að sækja um á fleyri stöðum líka en sjáum hvað gerist. Ég var ansi dugleg að djamma í vor en svo fór það mínkandi með þegar áleið sumar. En ég er á leiðinni á djammið í kvöld með vinnunni, við förum í bláalónið, kokteil í lóninu og svo matur á veitingarstaðnum og svo fáum við kokteil á Solon og svo gestalista á Thorvaldsens (það er verið að kveðja sumarstarfsmenn og vel unnin störf í sumar) Svo á laugardag er ég að fara í Diskó keilu með Dísu besta skinn og Dóra hennar. Ætli við förum ekki á eitthvað skrall eftir það. Ég bíst við því. Svo fór ég til Englands í sumar í langa helgi, náði mér þar í kærasta og allt happy happy joy joy. Flestir sem þekkja mig vita hver hann er og þið hin getið bara spurt. Allavega ég er voðalega ánægð með það allt saman þar sem hann er eðal gaur. Versta er að hann býr úti og við hittumst mjög sjaldan en hinsvegar tölum við saman á hverjum degi bæði í síma og sms-um. En já ég er semsagt ánægð með lífið þó ég sé að verða atvinnulaus og bý hjá mömmu. En mér fynnst það bara fyndið og hef engar áhyggjur. Allavega ég er núna að byrja drekka bjór fyrir kvöldið og tjatta við stelpurnar.

Síja


» 1 hafa sagt sína skoðun

09.08.2006 14:30:17 / erlasonja

Útland babe jehh

Jæja þá er ég farin til útlanda yfir helgina og mun skemmta mér konunglega. Mig er allavega farið að hlakka til. Ég fer meira að segja ekki með mikinn farangur (allavega ekki mikið fyrir mig) ég ætla að taka fyrstu rútu til Kef. og ætla að tjilla þar og versla mér ilmvatn. Allavega segi meira seinna. kannski að maður bloggi í útlandinu.

» 2 hafa sagt sína skoðun

31.07.2006 12:04:06 / erlasonja

Langt síðan síðast við heyrðumst

Sælt veri fólkið,

ég veit ég hef ekkert verið dugleg að skrifa í sumar. Ég hef bæði verið alveg verið að drukna í vinnu og ekki alveg nennt að skrifa (því ég veit ekki alveg hvað ég á að vera skrifa). En já þetta er búið að vera mjög mjög áhugavert sumar hjá mér. Ég er semsagt nemi á ferðaskrifstofur og flakka því mikið til þar innanhús. en ég nýt þess alveg, alltaf eitthvað nýtt og spennandi að gerast. Ég er meira að segja að skipuleggja ferð hér innan hús í hvalaskoðun og út að borða annað kvöld. Við ætlum um 10 stelpur saman og nokkrar taka maka með. (það væri nú gaman að bjóða einum með sér sem "maki" en ég geri það bara seinna) en allavega þá er mjög gaman að vinna hérna.:D:D. sumarið hjá mér hefur flogið svo hratt hjá að ég hef ekki undan að fylgjast með mánuðunum fara. Og vitið hvað ég ætla ekki að fara neitt um verslunarmannahlegina og ég er bara alveg sátt (þangað til þeir sýna í TV auglýsinguna um eyjar, en þá langar mig) en svo er ég að fara út þarna á fimmtudeginum eftir verslm.helgi. Mig hlakkar reyndar mjög mikið til að fara, en smá kvíði þó. En þetta er bara löng- helgi helgarferð. En maður veit aldrei hvað getur gerst í þessari ferð :haha::haha:. En svo er Dísa mín að fara í 2 vikur frá mér og þá verð ég einamanna lítill gosi. En svo tekur haustið við og þá byrjar nýtt ævintýri sem mig er farið að hlakka til, og kvíða líka fyrir. Ég þarf að fynna mér fulla vinnu (vil helst í ferðaþjónustu, vel launað) ég þarf líka að fynna mér auka vinnu og líka stað til að búa á. En ÞETTA REDDAST ALLT!!!!! ég hef svo litlar áhyggjur af þessu þannig lagað meira svona óvissu tilhlökkun að takast á við nýja hluti. ég er líka að ferðast ágætlega mikið í vetur. En ég segi betur frá Djammerðinn til Barcelona (fer í haust) seinna. En núna kveð ég og ég ætla að reyna að vera duglegri að skrifa meira núna.

síja


» 4 hafa sagt sína skoðun

14.06.2006 18:15:57 / erlasonja

sælt veri fólkið sem les

hellúúú fólk,

jæja ég er byrjuð í nýju vinnuni, þetta er alveg rosalega gaman. Ég er að kynnast fullt af nýju fólki og læra alveg massa massa mikið, enda er ég í smá vandræðum, þegar ég kem heim á kvöldin þá er ég orðin svo mikið þreytt að ég get ekki einu sinni sofnað, ofurþreitan er alveg að bera mig í yfirliði. En þetta er samt svo gaman. Seinustu dagar eru búnir að vera alveg nóg á minni könnu, vinnan, strákamál, djömm og svo varð slys í fjölskildunni sem alveg henti manni út í buskann með allt. Og verandi með þetta allt í hausnum það er þá kannski ekki furða að ég geti ekki sofnað á kvöldinn því þá fer hausinn á mér á 150. Jiii hvað mig hlakka til helgarinnar, ég ætla ekki að djamma!!!! ég ætla að sofa, synda og éta alla helgina. Allavega núna ætla ég að fara vinda mér í bókhaldi hjá meistaranum honum bróður mínum.

læt heyra í mér fljótlega aftur

ps: tölvan mín hrundi fyrir viku og ég gat gert við hana ALVEG sjálf!!!!!, eini mínusinn að það hvarf allt af henni, öll vinna mín hjá bróðir mínum, þannig nú þarf ég að vinna það upp sem er horfið.

síja

» 3 hafa sagt sína skoðun

31.05.2006 16:14:08 / erlasonja

Smá sumardjamm

Ég er að fara í nýju vinnuna mína á morgun og ég gæti ælt af stressi. Ég er alla vega með þokkalegan hnút í maganum.... og svona 5 mín fresti dreg ég djúpt andann og reyni að slappa af, en stressast bara meira upp.

Ég fór á djammið seinustu helgi (eins og svo oft) nema ég ætlaði ekki á djammið en Dísa kom í bókstaflegri merkingu og dró mig upp úr sófanum heima hjá mömmu og dró mig heim til frænku sinnar. Maður frænku hennar (Alexander) hélt grill fyrir Þýsku vinnumennina sína og Dísa var að hjálpa honum með það allt og hún neiddi mig til að vera hjá sér (fékk ókeypis bjór í staðinn) Ég var búin að vera svona 5 mínútur þá báðu nokkrir mig að fara upp á borð og strippa... ég brosti út í annað og sagði þeim að þeir hefðu ekki efni á mér;) og þar sem ég og Dísa vorum einu stelpurnar þá voru þeir alltaf að glápa á okkur og segja eitthvað á þýsku(verst að  maður kann ekki þýsku) Svo þegar mér og Dísu var farið að leiðast kom Vésteinn (litli bróðir Alexanders) og bjargaði okkur og fór að kjafta við okkur. Svo vorum við öll 3 orðin hífuð, þá bauð Alexander öllum upp á Players á Papa ball. (ég er með smá fordóma fyrir Pleyers) en maður yfirstígur allt fyrir frían bjór. þar var dansað og kjaftað framm á rauða nótt (ekkert smá stuð). það fyndna var að ég hitti stjúpbróður minn á Players og fór náttúrulega að kjafta við hann (hann er feimnasta manneskja sem ég þekki) og ég meira að segja dansaði við hann. Svo kynnti ég hann öllum sem litli bróður minn og auðvita roðnaði hann alveg niður í tær (sem er svo fynndið, annað hvort var hann að roðna yfir að vera kynntur sem bróður minn eða það að honum blöskraði lætin í mér) allaveg hefur hann aldrei séð mig í glasi og ég er mjög róleg heim hjá pabba þannig þarna kynntist hann annari hlið á mér. En þetta kvöld var mjög skemmtilegt það meira að segja endaði þannig að Dísa fór í eftirpartý með veskið mitt og ég fór á vit ævintýranna eitthvert annað. Svo þegar ég kom heim þurfti mamma að hleypa mér inn (ég hef aldrei verið svona kærulaus með veskið mitt) sem betur fer var Dísa með það mest allt kvöldið þannig ég þurfti ekki að hafa áhyggjur af því, svo þegar ég sótti það daginn eftir til hennar þá lágum við dauð timbraðar uppí rúmmi með Pízzu sem við hvorugar gátum étið. Eðal helgi ;);)

En núna er kominn tími til að fara stressa sig aftur út af vinnunni á morgun 8|


» 0 hafa sagt sína skoðun

23.05.2006 11:11:32 / erlasonja

Prófin búin!!!!

þá er ég loksins búin í prófunum, við stelpurnar hittumst alla dagana og lærðum eins og brjálæðingar, á endanum vorum við næstum því farnar yfirumm... en ég stend hér enn í dag kanski ögn brjálaðari en stend þó enn. Mér gekk bara vel í öllum prófunum en ég fæ einkunnir seinna í dag og svo er útskrift á morgun (og ekki enn búin að ákveða fötin). Ég skrifaði líka undir starfssamning við Íslands ferðir og mun byrja að vinna 1 júní hjá þeim, en þetta eru ekkert glæsileg laun sem nemar eru með. En eins og ég segji alltaf "þetta reddast alltaf".... Ég fór á klikkað djamm á laugardaginn. Við Dísa fórum í Evróvision partí til Elínar og við skelltum í okkur all mörgum bjórum, við fórum á nett flipp. Plötuðum strákana í næsta húsi að koma yfir og þar höslaði hún Ásrún bara einn gaurinn og var límd við hann allt kvöldið eftir það (sem var svo sætt). Svo skutluðu þeir okkur niður í bæ og við inn á Celtic (ætluðum bara að byrja þar) en enduðum á að vera allt kvöldið þar, það var útúrtroðinn staðurinn en ég lýg því ekki en ég komst næstum aldrei á klósettið því ég var alltaf að hitta einhvern sem ég þekkti... Svo ef það var ekki fólk sem ég þekkti þá voru það gaurar að reina við mig eða eitthvað álíka, á endanum var ég komin með ógeð á karlmönnum. Við Dísa skemmtum okkur svo vel vorum alltaf með bjór í hönd en keyptum samt bara einu sinn sjálfar. það var alltaf einhver að bjóða okkur. Á endanum var komið nóg af þessari vitleysu og okkur langaði að fara út (kl orðin hálf6) við röltum nokkur skref og þar hittum við þjóðverja sem hét Helgi og hékk hann með okkur þar til við fórum heim eða til um hálf 7. hann var fínn, gaman að tala við hann. En þetta kvöld flaug hratt yfir en þó var svo gaman að hálfa væri meira en nóg. Jæja ætli maður þurfi ekki að fara fara. Bara svo allir viti þá ætla ég ekki að halda útskriftarveislu, ég fer út að borða með fjölskildunni og læt það gott heita.

» 1 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 7
Fjölskildan Bloggar
Áhugavert að skoða